Metfjöldi farþega með Herjólfi 2014
Metfjöldi farþega ferðaðist með Herjólfi á árinu 2014, eða 296.974 talsins. Er það tæplega tvö þúsund farþegum fleira en árið 2012 þegar þeir voru 295.000 en það ár var farþegafjöldinn næst mestur. Í mars á síðasta ári var nokkurra vikna verkfall hjá undirmönnum Herjólfs, það hafði á sjálfsögðu áhrif á flutninga skipsins. Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri Herjólfs segist áætla að farþegafjöldinn hefði orðið um 4500 fleiri hefði ekki orðið af þessu verkfalli og að farþegafjöldinn hefði þá farið yfir 300 þúsund á árinu.
Á árinu 2014 flutti Herjólfur 67.501 bíla milli lands og Eyja en bæði árin 2012 og 2013 flutti skipið fleiri bíla.
Greinilegt er á samanburðartölum á flutningum Herjólfs frá árinu 2006 til 2014, að þegar siglingar hófust í Landeyjahöfn árið 2010, snarjukust bæði bíla- og farþegaflutningar Herjólfs. Bæði kemur þar til að siglt er oftar í Landeyjahöfn en �?orlákshöfn og svo hitt að fólk ferðast frekar með skipinu ef siglt er um Landeyjahöfn.
Hér að neðan má sjá samanburðartölur á flutningum Herjólfs með bíla og farþega frá árinu 2006 �?? 2014.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.