Meistaraflokkur karla ÍBV mætti Stjörninni í Fótbolta.net mótinu í Kórnum, Kópavogi í gær. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitaleik mótsins. Eyjamönnum dugði jafntefli. Bjarni Gunnarsson kom ÍBV yfir með góðu marki eftir sendingu frá Víði �?orvarðarsyni, en �?órhallur Kári Knútsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna rétt fyrir leikhlé. �?egar um það bil tuttugu mínútur voru til leiksloka kom Arnar Már Björgvinsson Stjörnumönnum yfir. Eftir það sóttu Eyjamenn stíft en náðu ekki að jafna. Leikurinn endaði því 1-2 Stjörnunni í vil.
Tveir leikmenn eru til reynslu hjá ÍBV þessa dagana þeir Edijs Jokts og Tom Even Skogsrud en báðir léku þeir í vörn liðsins.
Liðið spilaði á tímum mjög flottan fótbolta og verður spennandi að fylgjast með þeim í sumar.