Í næstu viku hefst Lífshlaupið en það er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og �?lympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.
Í lífshlaupinu eru landsmenn hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er til dæmis í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum tók þátt í fyrra og lenti 3. sæti í sínum flokki í fjölda daga sem þau hreyfðu sig en í 4. sæti yfir flestar mínútur á hreyfingu. Grunnskóli Vestmannaeyja tók einnig þátt í fyrra og lenti í 3. sæti í sínum flokki.
Lífshlaupið stendur fyrir:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið
Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.