Vegna hagstæðs veðurútlits og ölduspár, verður hafin dýpkun í Landeyjahöfn um helgina. Dísa er stödd í �?orlákshöfn þar sem verið er að gera hana klára fyrir dýpkun. Perla var stödd á Sauðárkróki en er lögð af stað til Landeyjahafnar. Einnig er ætlunin ef veðurspá helst góð að Sóley komi líka að dýpkun. Allt ræðst þetta af veðri og öldu. Bjartsýnustu menn vona að um þarnæstu helgi verði hægt að sigla til Landeyjahafnar en allt á það eftir að koma í ljós. �?að er allavega verið að reyna það sem hægt er til að opna höfnina.