Seinni partinn í dag hafa staðið yfir mikil fundahöld í Ráðhúsinu um málefni Landeyjahafnar og er Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar mættur til að fara yfir stöðuna. Fyrst var fundað með reyndum skipstjórum í Vestmannaeyjum sem hafa haldið því fram að nýtt skip sé ekki lausn í samgöngumálum Vestmannaeyja. Vandamálið sé höfnin sjálf.
Á eftir var öll bæjarstjórn, aðal- og varafulltrúar kölluð til fundar með Sigurði Áss. Heimildir Eyjafrétta herma að athyglin beinist að höfninni og hvort það skip sem er á teikniborðinu komi til með að standast væntingar.
Á Eyjar.net segir að um neyðarfund sé að ræða og tilefnið séu myndir sem birtust á síðunni í dag. Sýna þær brot í mynni Landeyjahafnar í gær þegar ölduhæð var lítil. �?á er greint frá því að fyrr í vikunni hafi loks orðið af fundi áhugahóps um bættar samgöngur milli lands og Eyja með fulltrúum Vegagerðarinnar. Hafi fundurinn verið mjög gagnlegur og þá ekki síst fyrir vegamálastjóra sem fékk þarna nýja sýn á vanda Landeyjahafnar.Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri bregst við þessu á facebook síðu sinni þar sem hann segir: Að gefnu tilefni; �?essi tilgreindi fundur með Siglingastofnun vegna Landeyjahafnar var ákveðin 22. desember 2014. Fundarboðun var síðan ítrekuð á fundi bæjarstjórnar 23. janúar 2015. �?ví miður er ekkert við núverandi stöðu Landeyjahafnar sem kemur á óvart. Staðan er mjög sambærileg við það sem hún hefur verið á seinustu árum. Hvernig á annað að vera? �?að hefur nákvæmlega ekkert verið gert til að bæta ástandið. Nánast er hægt að lofa að á næsta ári verður staðan enn sú sama – á meðan ekkert verður gert þá gerist ekkert. Krafa bæjarstjórnar verður því áfram einföld. “Tryggið öruggar og tíðar ferðir í Landeyjahöfn allt árið – fyrr er framkvæmdum ekki lokið.”