Vill endurvekja Daga lita og tóna
Fyrir fundi bæjarráðs í gær lá fyrir erindi frá Sigmari �?ór Matthíassyni þar sem hann er að kanna hvort áhugi og vilji sé fyrir hendi í Vestmannaeyjum til að endurvekja tónlistarhátíðina Dagar Lita og Tóna sem áður var árlegur viðburður um hvítasunnuhelgina.
Bæjarráð fagnaði erindinu og lýsti sig reiðubúið til að vinna málinu framgang og lýsir yfir áhuga á að Dagar Lita og Tóna verði endurvaktir. Í því samhengi benti bæjarráð bréfritara á að allir styrkir Vestmannaeyjabæjar til menningarviðburða fara í dag fram í gegnum Menningarráð Suðurlands og er bréfritara bent á að beina umsókn sinni þangað.
Jafnframt var Sigmar �?ór hvattur til að leita eftir samstarfi við Ferðamálastamtök Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.