Á fundi umhverfis- og skipulagráðs á mánudaginn lá fyrir fundargerð vinnuhóps um umferðarmál þar sem fjallað var um bréf Vegagerðarinnar varðandi umferðarúrbætur á gatnamótum Heiðarvegur og Kirkjuvegur. �?ar sem fram kemur að ekki er rými fyrir hringtorg á þeim vegamótum.
Ráðið leggur áherslu á að áfram verði unnið að umferðarúrbótum á ofangreindum vegamótum. Ráðið felur starfsmönnum umhverfis-og framkvæmdasviðs að ræða við Vegagerðina um næstu skref.