Liðsstyrkur úr Hafnarfirði?
Samkvæmt frétt fotbolta.net hefur ÍBV áhuga á að fá Viktor �?rn Guðmundsson, í sínar raðir en hann mun æfa með liðinu um næstu helgi. Viktor, sem getur spilað á vinstri kanti og í bakverði, er á förum frá Fylki. ,,�?g tók eftir að hann væri að losna frá Fylki og þetta er strákur sem ég þekki. Hann var að koma upp á sínum tíma þegar ég var að spila með FH,” sagði Tryggvi Guðmundsson aðstoðarþjálfari ÍBV í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,�?að hefur farið minna fyrir honum undanfarin ár en ég veit hvað í honum býr og þess vegna hafði ég samband við hann. �?g ætla að bjóða honum með mér í skemmtisiglingu til Vestmannaeyja um helgina þar sem við erum með æfingahelgi í Eyjum. Hann ætlar að æfa með okkur um helgina og við ætlum að sýna honum aðstæður, hvað við erum að hugsa og heyra í honum. �?að er gott fyrir okkur til að kynnast honum og fyrir hann að kynnast okkur. �?g veit hvað í honum býr og mig grunar að við getum fengið hann til að blómstra aftur.”
Varnarmaðurinn Hafþór �?rastarson hefur æft og spilað með ÍBV undanfarnar vikur og eru líkur áað hann semji við félagið. Hafþór er alinn upp hjá FH en lék með Haukum síðasta sumar.
,,�?g og Jói [Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV] erum hrifnir af því sem hann hefur sýnt okkur og við viljum bjóða honum samning. Viðræður eru í gangi og klárast vonandi sem fyrst,” segir Tryggvi.

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.