Í fylgiblaði Eyjafrétta um Landeyjahöfn er farið yfir söguna og reynt endurspegla umræðuna allt frá því að umræða um byggingu hennar fór af stað. Af mörgu var að taka og ekki hægt að birta allt sem um höfnina hefur verið sagt, enda aldrei ætlunin. �?rátt fyrir mikla gagnrýni á þessa höfn, verður af sanngirni að segja að hún hefur valdið byltingu í samgöngumálum Vestmannaeyja. En betur má ef duga skal. Á það hefur verið bent að �?orlákshöfn hafi verið í byggingu í meira en 40 ár, og Landeyjahöfn verði örugglega ekki sama höfnin eftir 40 ár. Hönnuðir hafnarinnar hafa sagt að núverandi Herjólfur henti ekki fyrir Landeyjahöfn, enda hafi hún verið byggð með annarskonar skip í huga. Reynslumiklir sjómenn hafa bent á að fyrir utan höfnina sé stundum úfinn s jór og háar öldur og meðan innsiglingin í höfnina fær ekki skjól af öldunum, verði alltaf miklar frátafir á siglingum þangað fyrir hvaða skip sem er. Innsiglingin þurfi meira skjól, þótt minna skip geta örugglega siglt oftar í Landeyjahöfn en núverandi Herjólfur, dýpisins vegna. Miðað við hvernig gengið hefur með Landeyjahöfn frá því hún var opnuð, virðist staðan vera sú að meðan ekkert breytist verði hún 8 mánaða höfn fyrir núverandi Herjólf. Hina mánuðina þurfi að sigla til �?orlákshafnar. �?að er því álitamál hvort eigi að vera að reyna dýpkun yfir hörðustu vetrarmánuðina. Hvort ný ferja komi til með að fjölga þeim mánuðum sem hægt verður að sigla í óbreytta Landeyjahöfn, verður tíminn að leiða í ljós.