Lykilmenn í landsleikjafríi
Mbl.is skýrir frá því í morgun, að Íslands­meist­ar­ar Stjörn­unn­ar og Eyja­menn gætu hvort um sig misst lyk­ilmann úr sín­um röðum mest­all­an júlí­mánuð vegna Gold Cup, úr­slita­keppni Norður- og Mið-Am­er­íku í knatt­spyrnu karla sem þá fer fram í Banda­ríkj­un­um og Kan­ada.
Pablo Punyed, miðjumaður Stjörn­unn­ar, og Jon­ath­an Glenn, fram­herji ÍBV og næst­marka­hæsti leikmaður Pepsi-deild­ar karla 2014, gætu spilað með landsliðum El Sal­vador og Tríni­dad og Tóbagó í keppn­inni. Báðar þjóðir eru í hópi þeirra tólf sem leika til úr­slita.
Glenn og Punyed voru vald­ir í landslið þjóða sinna í fyrsta skipti síðasta haust eft­ir góða frammistöðu á Íslandi. Glenn lék með Tríni­dad og Tóbagó í úr­slita­keppni Karíbahafs­bik­ars­ins í nóv­em­ber og Punyed spilaði þrjá vináttu­lands­leiki með El Sal­vador í októ­ber og nóv­em­ber.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.