Aldrei neinn alvöru kraftur
Eins og flestum sem fylgst hafa með þróun á þessari svokallaðir loðnuvertíð 2014-2015 ætti að vera kunnugt um þá hefur hún farið furðulega af stað það sem hefur veiðst er fyrir norðan land í djúpa nót en aldrei neinn alvöru kraftur þó svo einn og einn hafi verið að klára þetta flott En við lönduðum í gær laugardag á �?órshöfn okkar tæpum 500 tonnum sem við fengum fyrir norðan í tveimur köstum, létum það gott heita vikum undan brælunni og þessum miðum, lönduðum eins og fyrr segir og lögðu svo í ann suður eftir austfjörðum í algjöri skítabrælu hvað annað er svo sem nýtt ;).
En við ætlum að freista þess að finna loðnu hér sunnar og á grunnslóð. Erum við ennþá bjartsýnir á að það muni á endanum borga sig og að þetta verði hin ágætasta vertíð þó seint fari húna af stað …þegar hún fer á stað wink emoticon En við erum í þessum töluðum orðum komnir inn á Djúpavog við bryggju þar eftir að hafa stungið okkur aðeins inn á Seyðisfjörð í nokkra tíma í nótt og morgun vegna veðurs. En þá er ekkert eftir annað en að vona að veðrið fara ganga niður hér á þessu slóðum svo við getum betur skannað svæðið og látið helst finna fyrir okkur, en þar til bestu kveðjur frá Álsey inni á Djúpavogi.
Kristó 😉

Nýjustu fréttir

Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.