Verður Júníus Meyvant bjartasta vonin og með lag ársins?
Á morgun föstudag verða Íslensku tónlistarverðlaunin afhent. �?ar eigum við Eyjamenn okkar fulltrúa í fyrsta sinn í nokkurn tíma. En Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson betur þekktur sem Júníus Meyvant hlýtur tvær tilnefningar í ár. Lag hans Color Decay er tilnefnt sem popplag ársins og hann er einnig tilnefndur sem bjartasta vonin í poppi og rokki. En þar er það þjóðin sem velur og er hægt að gera það hér.
Við á Eyjafréttum veltum því fyrir okkur hvort hann væri fyrsti og eini Eyjamaðurinn sem hefur hlotið slíka tilnefningu. �?að er þó fjarri lagi því Eyjamaðurinn Eiður Arnarsson hefur hlotið nokkrar slíkar bæði með hljómsveit sinni Todmobile og sem bassaleikari ársins. Hefur hann jafnframt hlotið hnossið nokkru sinnum. Sem og að sjálfsögðu Bjartmar Guðlaugsson.
Ef þið munið eftir fleirum þá endilega leiðréttið okkur hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.