Eyjafréttum og Herjólfi seinkar
Enn á ný er Kári í jötunmóð. Meðalvindhraði á Stórhöfða er 28 metrar kl. 16.00 og hviður hafa farið í 36 metra. Seinkun verður á komu Herjólfs í dag, hann siglir nú á 7 mílna hraða og verður kominn til Eyja uppúr kl. 17.00. Eyjafréttir eru um borð í Herjólfi og því fyrirsjáanlegt að einhver seinkun verður á útburði blaðsins til áskrifenda í Eyjum. Með kvöldinu á heldur á lægja og minnka úrkoma, en blaðburðarfólkið verður að meta það sjálft hvort fært verður fyrir það að bera blaðið út í kvöld. �?eir sem einnig nýta sér netáskriftina að Eyjafréttum geta hinsvegar lesið blaðið nú þegar þar sem það er aðgengilegt á netinu. Í tilkynniningu frá útgerð Herjólfs segir að seinni ferð dagsins falli niður.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.