Jæja enn ein brælan mætt á svæðið með öllum sínum þunga. Ágætis dagur í gær á miðunum, enduðum með um 1.000 tonn eftir að hafa fengið um 100 tonn hjá Tasilaq (gamla Guðmundi VE29) en í morgun náðum við aðeins að kasta einu sinni áður en brælan skall á og uppskárum við um 100 tonn.
En þessi vertíð er hætt að koma manni á á óvart því það er ekkert eðlilegt við hana þessa frá upphafi til nú. Um tíma var lítið að sjá og svo birtist aftur loðna vestan við Eyjar og margir gerðu mjög fína hluti þar í gær í blíðskaparveðri (auðvitað við Eyjar). �?etta var á miðri siglingarleið Herjólfs milli Eyja og Stokkseyrar, – þurfti vinur minn Gulli Guðlaugur �?lafsson að sæta lagi og tók stórsvig milli þéttskipaðs loðnuflota, sem saman var kominn á þessa línu á litlu svæði. Var ekki annað að sjá að kappinn sem fyrr hafi staðið sig vel í því.
En talandi um Herjólf þá er hann hér rétt á eftir okkur á sömu siglingarleið og við með ströndinni og á leið heim ætli við endum ekki þar líka. En ég vona að Herjólfur fari vel með hana Möggu mína Margrét Elísa Gylfadóttir, sem er þar um borð, við því bæði á sömu leið en ekki í sömu ferð. En eins og ais sýndi áðan þá er ekki farið hratt yfir hjá okkur eða þeim, Herjólfur á 6,7 mílum en ef allt væri eðlilegt þá væru þeir á um 15 mílna ferð. �?á vitið þið það;) við á þessum tima á um 6,1 Mílu.. En gott og vel, við sem fyrr vonum að þessari langtíma brælu fari nú að linna og fari í langa pásu ( þó kortið segi annað:( ) og það takist að klára þessa vertíð með stæl, ekki veitir af enda nægur kvóti eftir að veiða ennþá.
En yfir og út í þessum bræluskít númer ^^^}%^+#}{]}#%***+ og átta. Góðar stundir
Kristó