Stjórnendadagur hjá HSU
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands ritar pistil á heimasíðu stofnunarinnar. �?ar skrifar hún: �??�?ann 9. apríl 2015 var haldinn stjórnendadagur í fyrsta sinn eftir að ný stofnun varð til með sameiningu þriggja heilbrigðisstofnanna á Suðurlandi. Alls sóttu um 40 stjórnendur daginn og voru margir að hittast í fyrsta sinn. Dagurinn var nýttur bæði fyrir fræðslu og til stefnumörkunar. Farið var yfir skipulag á HSU, kynntar voru nýjungar í sjúkraskrá og innleiðing á sjúklingavefnum Veru. Einnig var rætt um þjónustustýringu á stofnuninni í heild sinni, árangursmælingar og starfsmannasamtöl. Stjórnendur tóku einnig höndum saman og unnu að stefnumótandi málefnum varðandi mannauðsmál, rekstur, þjónustu og skipulag vinnuferla á stofnuninni.
Í lok dagsins ávarpaði heilbrigðisráðherra, Kristján �?ór Júlíusson, stjórnendur á HSU. Ráðherra skoðaði jafnframt húsnæði HSU á Selfossi og átti fund með framkvæmdastjórn. Heilbrigðisráðherra fór yfir framkvæmd og skipulag nýrra sameinaðra stofnanna í heilbrigðisumdæmum landsins og ræddi um rekstrarstöðu HSU. Hann kynnti stjórnendum HSU verkefnið �??Betri heilbrigðisþjónusta�?? og ræddi þar m.a. um þjónustustýringu og leiðir til að efla heilsugæslu og samfellu í þjónustu við sjúklinga. Jafnframt fór hann yfir verkefni sem er til skoðunar um fjármögnun eftir forskrift þar sem hugmyndin er að fé til heilbrigðisþjónustu fylgi sjúklingi. Ráðherra ræddi einnig um endurskoðun sem nú er unnið að varðandi greiðsluþátttöku sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og lyfja og möguleika við að setja hámark á útgjöld einstaklinga og réttmætari dreifingu kostnaðar. Farið var yfirupplýsisgjöf um heilbrigðiskerfið þar sem ný símaráðgjöf og gagnvirk heimasíða munu þjóna því hlutverki að stórauka yfirsýn yfir hvert leita má eftir þjónustu. Að lokum áttu stjórnendur samtal með heilbrigðisráðherra um ýmis mál er varða heilbrigðisþjónustuna og málefni HSU sérstaklega. �?að var afar ánægjulegt að fá ráðherra til fundar við stjórnendur á nýrri stofnun og dagurinn tókst í alla staði vel enda mörg spennandi og kerfjandi verkefni framundan.�??

Nýjustu fréttir

Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Frétta-píramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Siglt til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.