Karlakór Vestmannaeyja endurvakinn
“Sitjandi krákur þær svelta orti Megas á sínum tíma. Við getum vel samsvarað okkur í því peyjarnir því búið er að ráða kórstjóra og endurlífga Karlakór Vestmannaeyja sem legið hefur í dái hátt í hálfa öld.
Nú í kvöld [miðvikudaginn 15. apríl] skrifaði kórstjórinn �?órhallur Barðason undir ráðningarsamning við Karlakór Vestmannaeyja. �?essi fundur var rétt forleikur, en á eftir að halda formlegan stofnfund.
En að kórstjóranum, honum �?órhalli. Hann er búinn að sigra heiminn hvar sem hann kemur að kórstjórn. Nýjasta afrek sem hann getur státað sig af er að taka sjórekna, drykkfelda stýrimannsnema, þurrkað þá upp, klætt í hvíta skyrtu, skelt svörtu bindi um háls þeirra og tónað þá saman. �?eir enduðu helförina á því að vinna Söngvakeppni Framhaldsskóla árið 2012. Sem er mikið afrek.
Ef við líkjum honum við eitthvað sem tengist fótbolta þá er hann Mourinio kórstjóranna í heiminum. Svalur, kann að koma fyrir sig orði og kann ekki að tapa.
Búið er að ganga frá æfingasal. Fáum við sal Tónlistaskóla Vestamannaeyja og er fyrsta æfingin á miðvikudaginn næsta kl 20:00.
Við viljum hafa kórinn eins fjölbreyttan og hægt er, karlmenn á öllum aldri. Ungir sem aldnir.” segir í tilkynningu frá Ágústi Halldórssyni einum af forsprökkum kórsins.
Áhugasömum er bent á að gerast meðlimir fésbókarsíðu kórsins eða einfaldlega mæta á æfingu næstkomandi miðvikudag kl. 20.00 í sal Tónlistarskólans.
Karlakór Vestmannaeyja var stofnaður 1941 og var fyrsti söngstjórinn Helgi �?orláksson, kennari og síðar komu fleiri söngstjórar, má þar nefna Ragnar G Jónsson, í Berghól, þá organista í Landakirkju sem tók við stjórn kórsins 1945, ári eftir að Helgi hætti. Fleiri stjórnendur komu við sögu og má þar nefna Guðjón Pálsson, píanóleikara og Leif �?órarinsson tónskáld, en Ragnar tók við stjórn Karlakórsins á ný 1958 og var stjórnandi fram yfir 1960 er hann flutti frá Eyjum og hætti starfsemi kórsins í kjölfarið.

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.