Landið er fullt af ferðamönnum en enginn kemur til Eyja
�??Við þurfum betri lausn varðandi dýpkun Landeyjahafnar. �?g er ekki viss um að það þurfi að kosta mikið meira en þessi vitleysa sem er í gangi. Svo er ríkið búið að spara svo mikla
peninga við að fækka störfum í Vestmannaeyjum, að það hlýtur að vera hægt að leysa það.�?? �?etta segir Magnús Bragason, eigandi og hótelstjóri á Hótel Vestmannaeyjar, á facebook síðu sinni. Hann situr uppi, eins og aðrir í ferðamannaiðnaði í Vestmannaeyjum, með sárt ennið á meðan ekkier siglt í Landeyjahöfn og segir í fésbókarfærslu: �??�?g ætti sand af seðlum ef samgöngur við Vestmannaeyjar væru í lagi.
�?etta kemur fram í úttekt Eyjafrétta á stöðu fólks í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum í gær nú þegar Landeyjahöfn hefur verið lokuð frá því í nóvember. Hólmgeir Austfjörð, veitingamaður á 900 Grill, segir alla sammála um að staðan sé glórulaus. �??Við þurfum að fá svör við því hvað á að gera. �?að er verið að notast við löngu úrelt skip
við dælingu, það sjá allir. �?að hljóta að hafa orðið framfarir í þessu eins og öðru. �?að vantar bara að þessir háu herrar uppi á landi sýni samgöngumálum
Vestmannaeyja áhuga.�??
Hann sagði veitingamenn hafa rætt þetta mikið og staðan hljóti að vera svipuð hjá þeim öllum. �??Við höfum fjóra til fimm mánuði á ári til að rétta okkur af eftir veturinn en nú er
ekkert að gerast hér í samgöngumálum. �?að er lágmark að hægt sé að sigla í Landeyjahöfn þegar veður er gott en svo er ekki í dag. Landið er fullt af ferðamönnum en enginn
kemur til Eyja. Maður er að verða langþreyttur á þessu.�??

Nýjustu fréttir

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.