ÍBV jafnaði einvígið
Hart var barist í dag þegar ÍBV og Grótta mættust í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV sigraði leikinn 30-29 og jafnaði þar með einvígið við Gróttu sem hafði unnið fyrsta leik liðanna.
Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 3. mínútu leiksins fékk Anna �?rsúla Guðmundsdóttir,leikmaður Gróttu beint rautt spjald eftir að hafa brotið á Díönu Dögg Magnúsdóttur í hraðaupphlaupi. Dómurinn mikið áfall fyrir Gróttu en Anna �?rsúla er einn af lykilleikmönnum liðsins. ÍBV höfðu yfirhöndina til að stórum hluta í fyrri hálfleik en Grótta komst undir lok fyrri hálfleiks inn í leikinn og staðan í hálfleik var 14-14.
ÍBV byrjaði seinni hálfleikinn betur og voru ávalt skrefinu á undan Gróttu þó leikurinn hafi verið í járnum allt til loka en þegar lokaflautan gall var staðan 30-29.
Sigurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir ÍBV en núna er allt opið í einvíginu og liðin mætast á nýjan leik á mánudaginn úti á Seltjarnarnesi klukkan 19:30. Fjórði leikur liðanna fer fram í Vestmannaeyjum næstkomandi fimmtudag klukkan 19:30.
Mörk ÍBV skoruðu þær; Ester �?skars­dótt­ir 8, Vera Lopes 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Elín Anna Baldursdóttir 4,Telma Silva Amado 3, Drífa �?orvaldsdóttir 2, Kristrún �?sk Hlynsdóttir 1 og Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.