Í dag 29. apríl kl. 16:30 er Vestmannaeyingum boðið á gagnlegan fræðslufund í Akoges salnum, en fundarefnið hentar öllum þeim sem vilja búa sig vel undir starfslokin, sem og þeim sem hættir eru að vinna.
Fjármálin geta flækst til muna á eftirlaunaaldri og verður því rætt á mannamáli um skattamál, greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar, úttekt lífeyrissparnaðar og fleira.
Frítt er á fundinn og boðið verður upp á kaffiveitingar.