Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni
Lögreglan hafði í nógu að snúast í liðinni viku vegna ýmissa mála sem upp komu. Nokkur erill var um helgina án þess þó að alvarleg mál hafi komið upp. �?urfti lögreglan í nokkrum tilvikum að hafa afskipti af ölvuðum einstaklingum sem ýmist gátu enga björg sér veitt eða voru til óþurftar.
Tveir þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglu í liðinni viku en í öðru tilvikinu var um að ræða þjófnað á áfengi úr heimahúsi en í ljós kom að þarna höfðu ungmenni verið á ferð og náðust þau áður en þau byrjuðu að neita veiganna. Í hinu tilvikinu var um að ræða þjófnað á lyfjum úr heimahúsi en ekki er vitað hver eða hverjir þar voru að verki. Málin eru í rannsókn.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í liðinni viku. �?á liggur ein kæra fyrir vegna brota á stöðvunarskyldu og ein kæra vegna ólöglegrar lagningar ökutækis.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið og varð annað þeirra á gatnamótum Heiðarvegar og Kirkjuvegar en þarna hafði bifreið, sem ekið var norður Heiðarveg verið ekið inn á gatnamótin og í veg fyrir bifreið sem ekið var austur Kirkjuveg. Engin slys urðu á fólki en bifreiðarnar eru báðar eitthvað skemmdar. Í hinu tilvikinu var um að ræða árekstur á Hamarsvegi á gatnamótunum við Dalveg. �?arna hafði bifreið sem ekið var úr Dalnum verið ekið á bifreið sem ekið var austur Hamarsveg. Engin slys urðu á fólki en eitthvað tjón varð á bifreiðunum.
Lögreglan vill minna á að tími nagladekkjanna hefur runnið sitt skeið þetta vorið og má vænta þess að farið verið að sekta þá ökumenn sem aka um á negldum hjólbörðum þegar nær dregur miðjum mánuðinum. Eru þeir sem tök hafa hvattir til að skipta yfir á sumardekkin.

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.