STOP, það er verið á rangri leið
Við undirritaðir skorum á Innanríkisráðherra, þingmenn suðurlands og bæjarstjórn Vestmannaeyja að fara að hlusta og taka mark á varnaðarorðum reyndra skipstjórnarmanna.
Um síðustu helgi var reynslumesti skipstjóri Herjólfs í viðtali við Morgunblaðið um samgöngumál Eyjamanna á sjó. �?ar gefur hann stefnu stjórnvalda í þessum málum ekki háa einkunn. Eins hefur eigandi og skipstjóri Víkings tjáð sig opinberlega í fréttatíma sjónvarpsins R�?V og er það á sömu lund, báðir segja þeir að það þurfi að gera miklar úrbætur á aðkomunni að Landeyjahöfn. Í sama streng taka skipstjórar á dýpkunarskipum Björgunar og á Lóðsbát Vestmannaeyjahafnar. Er ekki kominn tími til að hlusta á þessa menn?
Samheldni Eyjamanna
Frá því að fyrstu vandræða varð vart í Landeyjahöfn árið 2010 hefur fátt staðist sem sérfræðingar Vegagerðarinnar hafa látið frá sér fara varðandi höfnina. Tómlæti ráðamanna hefur frá upphafi verið með ólíkindum og skella þeir skollaeyrum við athugasemdum sérfræðinga sem hafa áratuga reynslu í siglingum á sjó en ekki í tölvulíkönum. Vestmannaeyingum hefur verið legið það á hálsi að hafa ekki talað einum rómi um hvar vilji þeirra í málinu liggur, en í skoðanakönnun sem MMR framkvæmdi fyrir vefmiðilinn Eyjar.net í vetur kemur samheldni Eyjamanna berlega í ljós, og er það skoðun okkar sem undir þetta bréf skrifum að ráðamenn eiga að hafa það að leiðarljósi.
Traust bæjarbúa lítið
Í könnun MMR kemur berlega í ljós að trú bæjarbúa á innanríkisráðuneytinu og Vegagerðinni er ekki mikið. Vestmannaeyingar eru orðnir langþreyttir á biðlistum og löngum siglingum í �?orlákshöfn þegar nýja höfnin er í nokkurra mínútna fjarlægð. Ferðaþjónustunni blæðir vegna þeirra skelfilegu mistaka sem opinber stofnun hefur orðið uppvís að.
Leitað verði til hlutlausra sérfræðinga
�?að er ósk okkar að ráðamenn þessarar þjóðar fari að hlusta á raddir Eyjamanna sjálfra og hætti að taka mark á fólki sem löngu er búið að sanna getuleysi sitt í þessu máli. Hönnun Landeyjahafnar er langt frá því að vera lokið og ósk okkar er sú að leitað verði hið snarasta til hlutlausra erlendra sérfræðinga sem hafa þekkingu og reynslu á málum sem þessum og geta tekið verkið út og komið með tillögu að raunhæfum lausnum.
Áfram biðlistar?
Biðlistar hverfa ekki með tilkomu ferju sem samkvæmt útreikningum Vegagerðarinnar sjálfrar verður sprungin strax þegar hún verður tekin í notkun. Lausnin er ekki sú að fjölga ferðum, enda eru Vestmannaeyingar ekkert öðruvísi en aðrir Íslendingar, þeir vilja geta ferðast þegar þeim hentar og það sama á við um þá ferðamenn sem hingað vilja koma. Eina lausnin er stærri ferja.
Með ósk um að vilji Vestmannaeyinga um bættar samgöngur verði virtur.
F.h. Horfum til framtíðar
�?skar Elías �?skarsson
Rúnar Bogason
Kristján G. Eggertsson
Halldór Bjarnason
Alfreð Alfreðsson

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.