Hreinsunardagur á morgun laugardag
Laugardaginn 16. maí nk. frá kl 10.00 til kl. 12.00 verður hinn árlegi hreinsunardagur haldinn á Heimaey. Félagasamtök í Vestmannaeyjum hafa í gegnum tíðina tekið þátt í þessu verkefni og hefur þetta gengið mjög vel. Fyrirkomulagið verður það sama og venjulega. Félagasamtökum er úthlutað svæðum sem þau síðan hreinsa.
Pokar verða afhentir í Áhaldahúsinu kl. 10.00. Starfsmenn Kubbs munu vera hópunum innan handar. Að loknu hreinsunarátaki mun bæjarstjórn síðan bjóða til grillveislu við Vigtarhúsið.
Forsvarsmenn félagasamtaka sem áhuga hafa á að taka þátt er bent á að hafa samband við Hjalta Pálsson í síma 488-2500 eða á netfangið hjalti@vestmannaeyjar.is.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.