Íslenski safnadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá 1997 að frumkvæði einstaklinga innan safnageirans. Markmiðið hefur jafnan verið að benda á mikilvægi safna í faglegri varðveislu og miðlun sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar, samhliða því að vekja athygli á þeirri lifandi fræðslu og skemmtun sem finna má á söfnum um allt land.
Að þessu sinni verður Íslenski safnadagurinn haldinn 17. maí 2015 en Alþjóðlegi safnadagurinn er degi síðar. Yfirskrift dagsins er �??söfn í þágu sjálfbærni�?? en ein af helstu áskorunum samtímans er að þróa lifnaðarhætti sem stuðla að verndun náttúruauðlinda, aukinni samvinnu og sjálfbærni samfélaga.
Fjölbreytt dagskrá er í boði á söfnum landsins sunnudaginn 17. maí og má m.a. sjá yfirlit yfir hina fjölbreyttu starfsemi á heimasíðu Félags íslenskra safnamanna (FÍSOS) www.safnmenn.is. Í Safnahúsinu verðum við á kvenlegu nótunum í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Í Einarsstofu kynnir hópur kvenna bútasaum sem þær vinna að og í Sagnheimum, byggðasafni, opnum við kl. 14 glænýja sýningu undir yfirskriftinni: �??Eyjakonur í íþróttum í eitt hundrað ár�??. Stutt dagskrá verður flutt af íþróttakonum við opnun. Frítt er inn á safnið í tilefni dagsins. Sjá nánar í auglýsingu hér í Eyjafréttum.
Vera má að konur í Eyjum hafi stundað íþróttir í a.m.k. eitt hundrað ár en elstu heimildir um slíkt eru afskaplegar takmarkaðar. Fyrstu haldbæru heimildirnar eru frá því um og upp úr 1930. �?á má sjá á ljósmyndum fimleikahópa kvenna sem koma fram á sýningum á Eyjahátíðum. Á svipuðum tíma kemur kvennahandboltinn fram og þá sem útiíþrótt, og var hann lengi ein helsta skemmtun �?jóðhátíðar. Heimildir um sundkonur í keppni má einnig finna og sjö konur eru meðal 37 stofnenda Golfklúbbs Vestmannaeyja 1938. �?átttaka kvenna hefur síðan aukist jafnt og þétt og frá um 1970 eru konur orðnar þátttakendur í nær öllum greinum íþrótta hér í Eyjum. Af 37 afreksmönnum sem kosnir hafa verið íþróttamenn Vestmannaeyja (1978-2014) hlutu 9 konur þennan titil.
Á síðasta ársþing KSÍ mættu 126 fulltrúar, þar af voru fjórar konur. Raddir heyrast reglulega um mismunun á umfjöllun fjölmiðla um konur og karla í íþróttum og sést hafa tölur eins og að aðeins um 10% íþróttafrétta falli konum í hlut. Við opnun sýningarinnar mun �?órhildur �?lafsdóttir íþróttafræðingur, íþróttamaður Vestmannaeyja 2009, kynna lokaverkefni sitt við HR 2014 um samanburð á umfjöllun íslenskra vefmiðla á knattspyrnu karla og kvenna. Háværar raddir telja einnig að töluvert minna fé sé veitt til kvennaíþrótta en til karla. Með tilliti til þess hversu stórt hlutverk íþróttir gegna í öllu forvarnarstarfi barna og unglinga og í allri sjálfsstyrkingu, er þetta háalvarlegt mál og hlýtur jafnræði að þurfa að gæta þar sem og í öðru. Íþróttir gegna því mikilvægu hlutverki í að efla jafnrétti kynjanna.
Nýrri íþróttasýningu Sagnheima er ætlað að vekja athygli á afrekum lítils brots þeirra afrekskvenna sem keppt hafa undir merkjum íþróttafélaganna hér í Eyjum.
Allir eru hvattir til að heimsækja söfnin á íslenska safnadaginn og nýta sér það sem þar er boðið upp á.
Sagnheimar, byggðasafn