Svava Tara og Tanja Rut skrifa undir
Góðar fréttir bárust frá herbúðum ÍBV rétt í þessu en tvær ungar og efnilegar stúlkur skrifuðu undir samninga.
Stúlkurnar sem um ræðir eru Svava Tara �?lafsdóttir og Tanja Rut Jónsdóttir. Svava er fædd árið 1994 og er örfættur bakvörður, hún hefur spilað 56 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 3 mörk.
Tanja er dóttir Jóns �?lafs Daníelssonar, aðstoðarþjálfara meistaraflokks. Hún á sex leiki að baki fyrir meistaraflokkinn en sá fyrsti kom árið 2010. �?á var Tanja einungis fjórtán ára gömul.
Stelpurnar sömdu báðar til tveggja ára en miklar vonir eru bundnar við þær. Fyrsti leikur Íslandsmótsins hjá stelpunum fór fram í fyrradag en þá gerði ÍBV jafntefli við �?ór/KA á Akureyri.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.