Tap gegn Selfossi
ÍBV og Selfoss mættust í kvöld í 2. umferð Pepsi deildar kvenna þar sem Selfoss hafði betur 3-2 í spennandi leik.
Selfoss byrjaði leikinn aðeins betur. Á 21. mínútu voru Eyjastúlkur óheppnar að komast ekki yfir þegar ÍBV fékk tvær hornspyrnur í röð og seinni hornspyrnan endaði í færstönginni.
Á 41. mínútu dró til tíðinda þegar Sabrína Lind Adolfsdóttir braut á Guðmundu Brynju �?ladóttur í liði Selfoss og dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu sem Guðmunda Brynja skoraði úr af miklu öryggi og Selfoss leiddi í hálfleik 1-0.
Guðmunda Brynja var svo aftur á ferðinni á 57. mínútu þegar mistök urðu í vörn ÍBV. Natasha ætlaði að skalla boltanN frá en boltinn fór inn fyrir vörn ÍBV og Guðmunda Brynja setti boltann í netið. Eftir þetta hresstust Eyjastelpur mikið og má segja að markið hafi legið í loftinu, það var svo Sigríður Lára Garðarsdóttir sem átti gott skot fyrir utan teig á 64. mínútu og markmaður Selfoss átti aldrei séns.
Cloe Lacasse jafnaði svo leikinn fyrir ÍBV á 84. mínútu eftir frábært spil upp kantinn og lék skemmtilega á varnarmenn Selfoss og setti boltann í fjærhornið. �?að virtist allt stefna í jafntefli en Hrafnhildur Hauksdóttir, leikmaður Selfoss var ekki á því og skoraði sigurmark Selfoss á lokamínútu leiksins þegar hún skallaði boltann í netið og lokatölur 3-2.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.