Mál Vestmannaeyjabæjar tekið fyrir í hæstarétti
Klukkan 09:00 hófst málaflutningur í hæstarétti þar sem Vestmannaeyjabær krefst þess að ógildur verði sölusamningur milli Bergs-Hugins og Síldarvinnslunnar um kaup og sölu á 5200 þorskígildum af kvóta og tveimur bátum ásamt fylgifé. Fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar eru viðstaddir málaflutninginn þeir Elliði Vignisson, Bæjarstjóri og Stefán Jónasson, oddvita minnihlutans.
Krafa Vestmannaeyjabæjar byggir á því að sú litla vörn fyrir sjávarbyggðir sem byggð er í kvótakerfið með svo kölluðum forkaupsrétt verði virt en Vestmannaeyjabær vann málið í héraðsdómi en þar segir eftirfarandi í dómsorðum �??�?giltur er samningur um kaup stefnda, Síldarvinnslunnar hf., á öllum eignarhlutum í Bergi-Hugin ehf. af stefnda, Q44 ehf., dagsettur í ágúst 2012.�??
Fram kemur í dag á facebook síðu Elliða Vignissonar að það sé mikilvægt -fyrir sjávarbyggðir og útgerðir í landinu- að fá í eitt skipti fyrir öll úr því skorið hvort réttur sjávarbyggða eigi að vera virtur eða ekki.

Nýjustu fréttir

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.