Taka tvö í sumartónleikaröð Slippsins.
Söngvaskáldið og lagahöfundurinn Soffía Björg heiðrar okkur með nærveru sinni og flutningi ljúfsárra laga sem hitta beint í hjartastað. Með Soffíu í för er hljómborðsleikarinn Tómas Jónsson sem hefur gert garðinn frægan á öllum helstu blús og djass og hammondhátíðum landsins.
Skúli mennski gaf nýverið út plötuna Tíu ný lög sem gætu breytt lífi þínu í engri sérstakri röð. Platan hefur fengið góðar viðtökur og lagið Sekur setið á vinsældalista rásar 2 í sex vikur. Á tónleikunum verður lögð áhersla á efni plötunnar en eldra efni fær einnig að njóta sín.
Tónleikar hefjast klukkan 22 á í kvöld og það er frítt inn.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.