Nýr styrktar- og samstarfssamningur undirritaður
ÍBV íþróttafélag og Eimskip skrifuðu undir nýjan styrktar- og samstarfsamning til tveggja ára á heimaleik ÍBV gegn Víking í meistaraflokki karla sunnudaginn. Samningurinn snýr að farþegaflutningum Herjólfs sem rekinn er af Eimskip, fyrir leikmenn, liðstjóra og þjálfara deilda ÍBV og mun samningur þessi því létta mikið undir rekstri félagsins.
Markmið Eimskips er að styðja við kröftugt starf ÍBV í mótun ungra iðkenda og létta þannig undir með ÍBV að skila öflugri uppbyggingu í íþróttastarfi og sinna uppeldishlutverki sínu í Vestmannaeyjum.
Merki Eimskips verður á keppnisbúningum meistaraflokks félagsins í kvenna- og karla knattspyrnu eins og verið hefur undan farin ár og einnig verður félagið áberandi í öllu starfi félagsins.
�?að góða samstarf sem verið hefur á undanförnum árum í kringum viðburði ÍBV verður viðhaldið og mun ÍBV leggja sig fram um að auka þetta samstarf enn frekar til hagsbóta fyrir ÍBV, Eimskip og Herjólf.
Gylfi Sigússon og Íris Róbertsdóttir skrifuðu undir samninginn

Nýjustu fréttir

Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.