Erill hjá lögreglu í vikunni
Nokkur erill var hjá lögreglu í vikunni og þá sérstaklega um helgina enda Sjómannadagshelgin haldin hátíðleg. Nokkuð var um útköll í tengslum við skemmtanahaldið og þurftu nokkrir villuráfandi aðstoð lögreglu til að komast til síns heima sökum ölvunarástands. �?á var eitthvað um stympingar, en einungis ein kæra liggur fyrir eftir vikuna.
Ein líkamsárás var kærð til lögreglu en um var að ræða átök á milli tveggja manna á einum af öldurhúsum bæjarins um liðna helgi. �?urfti annar mannanna að leita til læknis vegna áverka sem hann fékk, sem þó voru ekki alvarlegir.
Í vikunni var tilkynnt um vinnuslys í Vinnslustöðinn en þarna hafði lyftara verið ekið yfir fót manns sem þarna var að störfum. Ekki reyndist vera um alvarlega áverka að ræða.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en þarna var um að ræða árekstur tveggja bifreiða á bifreiðastæðinu við verslunina Tvistinn. Ekki var um mikið tjón að ræða og engin slys á fólki.
Fjórar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna. Einn ökumaður var sektaður vegna hraðaksturs en hann mældist á 78 km/klst. á Kirkjuvegi, sami ökumaður var jafnframt sektaður þar sem hann virti ekki stöðvunarskyldu. �?á var einn ökumaður sektaður fyrir notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar og einn var sektaður fyrir að flytja farþega á þann hátt að það olli farþeganum hættu.
Lögreglan vill minna á að frá miðvikudegi til laugardags verður TM-mótið haldið hér í Eyjum og eru ökumenn hvattir til að aka varlega og þá sérstaklega í kringum knattspyrnuvelli bæjarins enda fjölgar mikið gangandi vegfarendum.

Nýjustu fréttir

Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.