Fréttatilkynning frá goslokanefnd
– Vinna við goslokahátíð Vestmannaeyja, sem haldin er 2.-5.júlí, er nú langt á veg komin og dagskráin farin að taka á sig mynd. Hátíðin verður fjölbreytt og skemmtileg, eins og ávallt, og eitthvað í boði fyrir alla.
Fjölmargar listasýningar, fjölbreytt barnadagskrá og hefðbundið fjör á Skipasandi eru fastir liðir. �?á verður skemmtilegt að sjá lífið sem Sirkus Íslands mun koma með í bæinn, en um 30 sirkuslistamenn ferðast með sirkusnum en sýningar þeirra verða í sirkustjaldi á Malarvellinum. Ekki verður síðra að sjá fjörið sem kemur með öllum vélhjólunum sem hér verða samankomin á landsmóti vélhjólamanna. Landsbankinn mun taka við af Sparisjóðnum og halda upp á Landsbankadaginn. �?etta er einungis brotabrot af því sem í boði verður og verður frekari dagskrá kynnt innan tíðar.
�??
Goslokanefnd vill nú á þessum tímapunkti biðja þá sem hafa hug á að vera með viðburð þessa daga sem hátíðin stendur, að senda upplýsingar um viðburðinn á netfangið goslok@vestmannaeyjar.is, eða hafa samband í síma 488-2000. Einungis með þeim hætti er hægt að tryggja að upplýsingar um viðburðinn verði auglýstar í dagskrá hátíðarinnar! Allar ábendingar, hugmyndir og vangaveltur eru vel þegnar!

Nýjustu fréttir

Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.