Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum í síðustu viku
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku enda mikill fjöldi fólks í bænum í tenglsum við Orkumótið í knattspyrnu. Nokkuð var um að lögregaln þurfti að hafa afskipti af ökumönnum vegna aksturslags þeirra og voru nokkrir þeirra sektaðir sökum þessa. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað um að lögreglan þurfti að hafa afskipt af fólki vegna ástands þess.
Tvö fíkniefnamál komu upp í vikunni en lögreglan fór í tvær húsleitir og fundust í báðum þeirra smáræði af kannabisefnum. Málin teljast að mestu upplýst.
�?rjú umferðaróhöpp urðu í liðinni viku en engin alvarleg slys urðu á fólki í þessum óhöppum, en ökutækin sem þarna áttu hlut að máli skemmdust þó nokkuð.
Tvö slys urðu í liðinni viku og var í báðum tilvikum um að ræða gestkomandi drengi á Orkumótinu en annar þeirra slasaðist í Spröngunni en þó ekki alvarlega. Í hinu tilvikinu féll drengur ofan af vegg við Barnaskólann og er talið að hann hafi haldleggsbrotnað.
Alls liggja fyrir 16 kærur vegna brota á umferðarlögum þar sem alls 9 ökumenn voru kærðir vegna ólöglegrar lagningu ökutækja sinna, tveir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu, einn fyrir að aka gegn einstefnu, einn fyrir akstur án ökuréttinda og fjórir fyrir að vanrækja notkun öryggisbelta í akstir.
Lögreglan vill í tilefni af Goslokahátíðar um komandi helgi minna foreldra og forráðamenn barna á útivistareglurnar og bendir á að börn og ungmenni eiga ekkert erindi á skemmtanir þar sem áfengi er haft um hönd.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.