Uppbyggingarsjóður Suðurlands úthlutar 42 milljónum til 93 verkefna
Nýverið auglýstu Samtök sunnlenskra sveitarfélaga eftir umsóknum um styrki til menningar- og nýsköpunarverkefna á Suðurlandi. Um er er að ræða fyrri úthlutun styrkveitinga á árinu úr nýjum sjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Alls bárust að þessu sinni 184 umsóknir. Styrkur var veittur 93 verkefnum og er heildar fjárhæð styrkveitinganna rúmlega 42 milljónir. Styrkveitingar til menningarverkefna voru um 18 mkr. og 24 mkr. til nýsköpunarverkefna. Verkefnin eru fjölbreytt og ná til ólíkra atvinnu- og listgreina og styðja við verkefni vítt og breytt um landshlutann. Umsóknir að þessu sinni gefa okkur tilefni til að vera bjartsýn þegar litið er til framtíðar. �?thlutað verður héðan í frá tvisvar sinnum á ári úr sjóðunum, bæði til menningar- og nýsköpunarverkefna.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur það hlutverk að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun Suðurlands og stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Verkefnastjórn Sóknaráætlunar á Suðurlandi fer með endanlegt hlutverk úthlutunarnefndar en úthlutunarnefndir á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar, skiluðu tillögum til verkefnastjórnar. Umsjón og ábyrgð Uppbyggingarsjóðsins er hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.
Eftirtaldur aðilar úr Vestmannaeyjum fengu styrkveitingu
Menningarverkefni;
Fuglar og fiskar Sæheimar – Fiskasafn 400.000
�?jóðhátíð í 140 ár – heimildarmynd / framhaldsstyrkur SigvaMedia 400.000
Hans og Gréta Leikfélag Vestmannaeyja 200.000
Röð listviðburða í Einarsstofu í Vestmannaeyjum. Bókasafn Vestmannaeyja 200.000
Saga og súpa í Sagnheimum Sagnheimar, byggðasafn 200.000
Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni;
Norðurljósa- og stjörnuskoðunarstöð í Vestmannaeyjum Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja 1.200.000
Loftsýn Tómas Einarsson 750.000
Sæbjúgu við Vestmannaeyjar Godthaab í Nöf 500.000
Vöruþróun á bjór úr hráefnum úr náttúru Vestmannaeyja Einsi Kaldi ehf 500.000
Söguskart – Hringrás Lundans Karitas Valsdóttir 300.000

Nýjustu fréttir

ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.