Ekki allir sáttir við tilmæli lögreglustjórans í Vestmannaeyjum
Ekki er allir sáttir við þá ákvörðun Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum vegna bréfs sem hún sendi viðbragðsaðilum sem koma að þjóðhátíðinni í gær. �?ar bendir Páley á mikilvægi þess að allir sem koma að hátíðinni haldi trúnað og virði þagnarskyldu sína. �?etta sé sérstaklega mikilvægt þegar kynferðisbrot koma upp enda virðist þau vera það sem fjölmiðlar vilja helst fjalla um. �?að sé afar þungbært fyrir aðila kynferðisbrots að málið sé á forsíðum blaðanna á sama tíma og viðkomandi er að takast á við brot, byrja kæruferli og slíkt. �?ví sé þetta mikilvægt.
Talskona Stígamóta var mjög ósátt við þessa ákvörðun í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Á dv.is segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands: -�?g er algerlega gáttaður á þessu, og þetta er á skjön og úr takti við allt það sem hefur verið að gerast í samfélaginu og segir að félagið geti ekki látið svona tilmæli sem beinast sérstaklega gegn fjölmiðlum óátalin, og búast má fastlega við því að félagið álykti gegn tilmælum lögreglustjórans.
Kynferðisbrot séu alvarleg ofbeldisbrot og brotaþolar þeirra eiga það ekki skilið að yfir þeim sé þagað. �??�?eir eiga það skilið að frá þeim sé sagt. Að frá þeim sé sagt með virðingu fyrir brotaþolum og með áherslu á að ofbeldi er ávallt á ábyrgð þess sem því beitir. Við sem samfélag skulum ekki taka þátt í því að þagga niður ofbeldisbrot, hvort sem um ræðir kynferðisofbeldi eða annars konar ofbeldi. Við skulum ekki velja að taka þátt í því að ýta undir skömm og sektarkennd brotaþola eða ábyrgðarfirringu gerenda með því að þegja um kynferðisbrotamál. Sýnum brotaþolum kynferðisbrota þá virðingu að tala um þessi brot, rétt eins og við segjum frá tölfræði annarra brota,�?? segir Hjálmar við dv.is.
Ingibjörg �?órðardóttir félagsráðgjafi, ráðgjafi og stjórnarkona hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, skrifar athyglisverða grein á stundin.is þar sem hún segir m.a.: �??Kynferðisbrot eru alltaf flókin og erfið í sjálfu sér og hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem þeim eru beittir, á því leikur enginn vafi. �?ess vegna er mikilvægt að vel sé að því staðið hvernig þeim er sinnt þegar upp um þau kemst. Mikilvægt er að vel sé staðið að þjónustu við brotaþola. Vel sé staðið að rannsókn málsins og að bæði lögregla og aðrir fái þann vinnufrið sem nauðsynlegur er til að sem best verði úr málum unnið. �?etta eru einmitt rök lögreglustjóra Vestmannaeyja í bréfi þar sem hún brýnir fyrir öllum þeim viðbragðsaðilum sem að �?jóðhátið koma, að gefa fjölmiðlum ekki upplýsingar um það HVORT kynferðisbrot hafi átt sér stað á hátíðinni. �?essi rök og að það sé �??þungbært fyrir aðila kynferðisbrots að málið sé á forsíðum blaðanna�??.
�?g get tekið undir þau orð að æsifréttamennska um einstök mál getur verið erfið fyrir brotaþola og haft erfiðar tilfinningar í för með sér. �?að er hins vegar enn alvarlegra ef viðbragðsaðilar hátíða, hvort sem um ræðir lögreglu eða aðra, ætla að taka þátt í því að þagga niður kynferðisbrot. Að því sögðu er að sjálfsögðu einnig mikilvægt að við sem vinnum að þessum málum og komum að kynferðisbrotum, með hvaða hætti sem það kann að vera, biðlum til fréttamiðla að vanda alla umræðu um slík mál. Að við komum því á framfæri að þessi mál þarf að ræða með virðingu fyrir brotaþolum í huga.
�?á skiptir engu máli hvort málin koma upp í samhengi við �?jóðhátíð í Vestmannaeyjum, aðrar útihátíðir eða einhverjar allt aðrar aðstæður.
Kynferðisbrot eru alvarleg ofbeldisbrot og brotaþolar þeirra eiga það ekki skilið að yfir þeim sé þagað. �?eir eiga það skilið að frá þeim sé sagt. Að frá þeim sé sagt með virðingu fyrir brotaþolum og með áherslu á að ofbeldi er ávallt á ábyrgð þess sem því beitir. Við sem samfélag skulum ekki taka þátt í því að þagga niður ofbeldisbrot, hvort sem um ræðir kynferðisofbeldi eða annars konar ofbeldi. Við skulum ekki velja að taka þátt í því að ýta undir skömm og sektarkennd brotaþola eða ábyrgðarfirringu gerenda með því að þegja um kynferðisbrotamál. Sýnum brotaþolum kynferðisbrota þá virðingu að tala um þessi brot, rétt eins og við segjum frá tölfræði annarra brota,�?? segir Ingibjörg sem fullyrðir að ekki eigi að gefa upplýsingar hvort kynferðisbrot hafi átt sér stað á hátíðinni. �?að er þó ekki ætlunin eins og Páley segir við eyjafréttir.is í dag.

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.