Húkkaraballið var haldið í Höllinni í gærkvöld, mörg hundruð ungmenni voru á ballinu og sá Páll �?skar Hjálmtýsson um að skemmta gestum. Allir virtust skemmta sér vel eins og sést á meðfylgjandi myndum sem �?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta tók í gær.
Til stóð að hafa Húkkaraballið úti eins og undanfarin tvö ár en móts haldarar treystu ekki á veðrið og fluttu ballið í Höllina. Núna er hæglætis veður í Eyjum og fólk er bjartsýnt um gott veðurfar um helgina.