Mario Brlecic hefur skrifað undir samning við ÍBV. Mario er miðjumaður sem kemur frá Króatíu en spilaði síðast með Concordia Chiajna í Rúmeníu. Mario er 26 ára og mun geta spilað annað kvöld með ÍBV gegn Fylki. Brlecic fékk leikheimild með ÍBV í dag en félagaskiptin voru send frá knattspyrnuráði áður en félagaskiptaglugginn lokaði á föstudag en þar sem að búið var að senda beiðnina fyrir þann tíma fær Brlecic leikheimild samkvæmt nýrri reglugerð KSÍ.