ÍBV tók á móti Fylki fyrr í kvöld þegar 14. umferð Pepsi deildar karla hófst. Fylkir sigraði leikinn 1-0 eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og beindist mikil athygli að dómara leiksins sem átti ekki sinn besta dag og missti leikinn á tímabili í fyrri hálfleik, leikmönnum beggja liða var heitt í hamsi og hefðu nokkur gul spjöld ef ekki rauð átt að fara á loft. Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik, Guðjón Orri varði stórglæsilega með hausnum þegar leikmaður Fylkis slapp einn í gegn. Sito átti svo stórglæsilegt skot sem endaði í þverslánni rétt undir lok fyrri hálfleiks, óheppinn að koma ekki ÍBV yfir.
Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði eina mark leiksins úr aukaspyrnu á 60. mínútu leiksins þegar hann gaf boltann fyrir beint á Guðjón Orra sem missti boltann í netið.