Varaspennirinn tengdur á sunnudag
Prófunum er lokið hjá Landsneti á varaspenni sem skipta á út fyrir þann sem bilaði í tengivirkinu í Rimakoti í fyrrakvöld. �?ær gengu vel og verður spennirinn fluttur austur í Rimakot í dag. Í framhaldinu verða spennaskiptin undirbúin og er nú stefnt að því að tengja varaspenninn inn á kerfið á sunnudag. Með þessum aðgerðum á að vera hægt að tryggja forgangsorkunotendum í Vestmannaeyjum nægt afl en skerðingar til annarra notenda verða áfram í gildi þar til viðgerð er lokið á spenninum sem bilaði.
Allt kapp er lagt á að flýta flutningi á varaspenninum austur og er reiknað með að hann geti verið tilbúinn til innsetningar í Rimakoti á sunnudagsmorgun. Tengingartíminn var ákveðinn í samráði við HS Veitur og Rarik á Suðurlandi en sú aðgerð tekur allt að sólarhring.
Laskaði spennirinn í Rimakoti var spennusettur á ný í gærkvöldi á litlu afli og tókst það vel. Í morgun hefur álagið verið aukið smávegis og gengur það vel enn sem komið er og hefur Rarik m.a. fengið afl fyrir Víkurlínu 1. Strax og varaspennirinn hefur verið tengdur fer spennirinn sem bilaði í viðgerð. �?tla má að hún taki að lágmarki eina viku en það fer þó eftir alvarleika bilunarinnar.
Með þeim bráðbirgðaaðgerðum sem verið er að ráðast í af hálfu Landsnets ætti að vera hægt að tryggja forgangsnotendum nægt afl en skerðingar til annarra verða áfram í gildi. Dreifiveitan í Eyjum, HS Veitur, stýrir skerðingunni í samstarfi við notendur á svæðinu, eins og verið hefur frá því bilunin kom upp

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.