Knattspyrnuráð karla ÍBV upplýsir hér með að verið er að undirbúa kæru til Knattspyrnusambands Íslands á hendur knattspyrnudeild Fylkis.
Tilefnið er að Fylkir hafði samband við, gerði tilboð í og gekk frá samningi við samningsbundinn leikmann ÍBV áður en heimilt var, skv. reglum KSÍ. Knattspyrnuráð ÍBV mun ekki tjá sig frekar um þetta mál fyrr en umrædd kæra hefur verið tekin fyrir hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Knattspyrnuráð ÍBV mun einnig óska eftir flýtimeðferð á áðurnefndri kæru.
Inni á heimasíðu R�?V kemur fram að leikmaðurinn sem um ræðir sé Jose Enrique Seoane Vergara, Sito.