Nú þegar nokkrar klukkustundir eru þar til flautað verður til leiks í leik B-liðsins við Hauka 2 vill B-liðið koma eftirfarandi á framfæri:
Eftir að hafa setið agndofa og horft upp á tap ÍBV gegn Haukum í gærkvöldi í Olís-deildinni varð liðsmönnum B-liðsins það ljóst að styrkja þyrfti liðið enn frekar til að koma í veg fyrir tap í kvöld. �?formlegar þreifingar höfðu átt sér stað undanfarið við nokkra leikmenn en í gærkvöld var allt púður sett í að klára samkomulag við ákveðinn leikmann. Gengið var að öllum hans kröfum um aðbúnað og m.a. keypt sérstakt teip bara fyrir hann (sjá mynd).
Leikmaðurinn sem um ræðir er enginn annar en Björgvin �?ór Rúnarsson, athafnamaður og fasteignasali á DomusNova (vantar eignir á skrá). Björgvin er örvhent undur sem marga fjöruna hefur sopið í boltanum og er gríðarlegur styrkur fyrir liðið. Að sögn Björgvins hefur hann æft af krafti undanfarið með vinum sínum í Harlem Globtrotters og unnið vel í stökkkraftinum.
Leikurinn hefst kl. 20 í kvöld í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Frítt inn og allt að frétta. Sjáumst þar!