Eyjalistinn endurvekur umræðu um frístundakort:: Skipulagt æskulýðsstarf skilar ábyrgum þátttakendum út í samfélagið
Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku ítrekaði Eyjalistinn mikilvægi þess að sem flest ungmenni eigi möguleika á að stunda einhvers konar félags- og tómstundastarf og skyldu allra sveitarfélaga að styðja börn og unglinga við það að eiga færi á að stunda íþrótta- og tómstundaiðkun. Gerir tillaga þeirra ráð fyrir 25.000 króna styrk á barn á ári. �?etta kom fram í umræðu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2016. Lögðu þau til að umræðan um frístundakortin verði tekin upp á ný. Undir þetta skrifuðu Auður �?sk Vilhjálmsdóttir og Stefán �?skar Jónasson, bæjarfulltrúar Eyjalistans og í greinargerð segir að skipulagt félags- og tómstundastarf sé ekki aðeins mikilvægur vettvangur fyrir afþreyingu ungs fólks heldur sé það talið ein af grunnstoðum uppbyggilegrar þátttöku þess í samfélaginu.
�??Börn og ungmenni sem taka þátt í markmiðsbundnu æskulýðsstarfi eru líklegri til þess að líta á sig sem ábyrga þátttakendur í samfélaginu auk þess sem sjálfsmynd barna er að miklu leyti mótuð í þátttöku þeirra í frístundum og tómstundastarfi,�?? segir í bókuninni.

Vitna í rannsóknir
�?au benda á að stöðugt fleiri rannsóknir bendi til þess að beint orsakasamband sé að finna á milli líkamlegs atgervis, hreyfingar og námsframmistöðu barna og unglinga. Ennfremur, og ekki síður mikilvægt sé að rannsóknir gefi mjög sterka vísbendingu um að ungt fólk sem tekur þátt í skipulögðu æskulýðsstarfi hafi síður tíma og aðstæður til að falla fyrir áhættusömum freistingum. �??Mikilvægi þess að sem flest ungmenni eigi möguleika á að stunda einhvers konar félags- og tómstundastarf er gríðarlegt og í ljósi fyrrnefndra þátta ætti það að vera skylda allra sveitarfélaga að styðja börn og unglinga við tómstundaiðkun,�?? segja þau og leggja til að tekin verði upp frístundakort, sem er niðurgreiðsla á gjöldum til tómstundaiðkunar. Fyrri hugmyndir þeirra hljóðuðu upp á 15.000 krónur á barn á ári en tillagan miðar að því að forráðamenn allra barna á aldrinum 6 til 16 ára með lögheimili í Vestmannaeyjum geti sótt um frístundastyrki að upphæð kr. 25.000. �?? á barn til að greiða niður gjöld af tómstundaiðkun.
Hugmynd að framkvæmd
Lagt er til að verkefnið verði tilraunaverkefni til tveggja ára. �?thlutun frístundastyrkja fari fram í gegnum Vestmannaeyjabæ og upphæðin renni beint til þess aðildarfélags sem forráðamenn óska. Aðildarfélög þurfi að gera skriflegan samning við Vestmannaeyjabæ um samstarf. �?ll félög með skipulagt íþrótta- og tómstundastarf, undir leiðsögn, með starfsemi í að minnsta kosti tíu vikur samfellt geti óskað eftir samstarfi við Vestmannaeyjabæ. Gert er ráð fyrir að tímabil hverrar styrkveitingar sé almanaksárið og yrði því styrkurinn til ráðstöfunar frá og með 1. janúar ár hvert. Ekki verður um að ræða beingreiðslur til forráðamanna, heldur hafi þeir rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum. Forráðamenn þurfa að sækja um styrkinn til Vestmannaeyjabæjar.
Hægt að skipta á milli
�??Okkar hugmynd er að hægt sé að skipta frístundastyrknum niður á fleiri en eina tómstundaiðju en það er ekki hægt að flytja styrkinn á milli tómstunda á miðju tímabili. Ekki þarf að ráðstafa öllum frístundastyrknum í einu og ekki er mögulegt að nýta frístundastyrkinn á milli ára. �?á er lagt til að aðildarfélög geti ekki hækkað gjaldskrá sína á meðan tilraunaverkefnið stendur yfir,�?? segir í lokaorðum greinargerðarinnar. �??Við neyðumst til að horfast í augu við þann blákalda veruleika að börn á Íslandi í dag sitja alls ekki við sama borð þegar kemur að þeim möguleika að stunda tómstundir og íþróttastarf,�?? sagði Auður �?sk við Eyjafréttir. �??Hagstofan vann rannsókn sem nefnist Lífskjör og lífsgæði barna og var gefin út fyrr á árinu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna svart á hvítu sorglegan veruleika sem of stór hluti fjölskyldufólks á Íslandi býr við í dag. Á síðasta ári var tæpur þriðjungur barna á Íslandi ekki í reglulegu tómstundastarfi, sem er gífurleg aukning á sl. fimm árum, en árið 2009 var hlutfallið rétt um 14%. Hlutfall þeirra barna sem ekki voru í reglulegu tómstundastarfi var margfalt hærra heldur en hlutfall þeirra barna sem ekki nutu annarra lífsgæða. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu ennfremur til kynna að áhrif fjárhags heimila á möguleika barna til tómstundaiðju hafi aukist í kjölfar hrunsins. �?etta eru sláandi niðurstöður í ljósi þess að skipulagt félags- og tómstundastarf skipar stóran þátt í forvörnum fyrir börn og unglinga.�??
Léttir undir með fjölskyldum
Auður �?sk sagði að ef litið sé til heildarútgjalda í málaflokki æskulýðs- og íþróttamála fyrir síðasta ár myndi áætlaður kostnaður frístundakortsins einungis hljóða upp á rétt rúm þrjú prósent af útgjöldunum. Hún spyr hvort þessi kostnaður sé það mikill að ekki sé hægt að koma til móts við þau börn sem eiga ekki kost á því að stunda tómstunda- og íþróttastarf eða létt sé undir með þeim fjölskyldum sem rétt ná að dekka þennan útgjaldalið. �??Mér þykir mikilvægi þess að sveitarfélög bjóði upp á frístundakort gríðarlega mikið og tel að það ætti að flokkast sem forgangsmál. �?að er þáttur af okkar hlutverki að standa vörð um það að öllum börnum standi til boða að stunda tómstundir óháð fjölskylduaðstæðum,�?? sagði Auður �?sk.

Nýjustu fréttir

Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.