Málverkasýning Sigurðar K. Árnasonar í Einarsstofu opnar á morgun, laugardag
Á morgun, laugardag 5. desember kl. 13 opnar málverkasýning Sigurðar K. Árnasonar í Einarsstofu, Safnahúsi. Sýningin verður opin um helgina kl. 13-18 laugardag og sunnudag. Listamaðurinn verður sjálfur á staðnum. Sýningin verður síðan opin alla virka daga 10-18 og á laugardögum 13-16 eða á opnunartíma Safnahúss. Sýningin stendur til áramóta.
Sigurður er fyrsta barn hjónanna Helgu Sveinsdóttur, �?órðarsonar frá Mýrum og Gamla Hrauni og Árna Magnússonar, Jónssonar, Valdasonar frá Steinum undir Austur Eyjafjöllum, en kona hans var Guðríður Jónsdóttir frá Ytri Skógum í sömu sveit. �?au fluttu til Eyja frá Minni Borg árið 1911. Magnús, föðurafi Sigurðar, fékkst við sjómennsku og grjóthleðslur og var kallaður �??Mangi grjót�??.
Sigurður hlakkar mikið til að koma til Eyja og sýna Eyjamönnum það sem hann hefur verið að gera í myndlist á langri ævi. Myndirnar sem Sigurður sýnir að þessu sinni tengjast allar Vestmannaeyjum og sýna margar hverja æskustöðvarnar sem nú eru komnar undir hraun. Tengslin við Vestmannaeyjar hafa enda aldrei slitnað og sýndi hann á listahátíðinni, Dagar lita og tóna á hvítasunnu 1996. �?á gaf hann Vestmannaeyjabæ málverk eftir sig sem er góð viðbót við glæsilegt listasafn bæjarins.
Verið hjartanlega velkomin.
Listvinir Safnahúss

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.