Svekkjandi tap gegn FH
Eyjamenn léku gegn FH-ingum í Kaplakrika í kvöld í Olís deild karla. Leiknum lauk með eins marks tapi strákana 24-23.
Strákarnir hófu leikinn af miklum krafti og voru komnir fjórum mörkum yfir 1-5 eftir aðeins 5 mínútna leik. �?jálfari FH, Halldór Jóhann Sigfússon, var nóg boðið og tók leikhlé. Leikhléið slökkti á okkar mönnum en Eyjamenn skoruðu ekki í átta mínútur. FH-ingar gengu á lagið og komust yfir 8-7 eftir 23 mínútna leik og héldu þeirri forystu út hálfleikinn, staðan 13-12. Síðari hálfleikurinn var gríðarlega jafn en mest munaði tveimur mörkum á liðunum í hálfleiknum en heimamenn voru alltaf fyrri til og voru 1-2 mörkum yfir mest allan hálfleik. Leiknum lauk 24-23 fyrir heimamenn. Svekkjandi tap hjá strákunum en eftir þetta tap erum Eyjamenn í 5. sæti deildarinnar með 14 stig en eiga leik til góða á liðin fyrir ofan sig.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Grétar �?ór Eyþórsson 6, Einar Sverrisson 5, Kári Kristjánsson 3, Brynjar Karl �?skarsson 3, Svanur Páll Vilhjálmsson 2, Theodór Sigurbjörnsson 2, Dagur Arnarsson 1, Andri Heimir Friðriksson 1.
Stephen Nielsen varði 15 skot í marki ÍBV þar af eitt víti.

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.