Bæjarráð í dag - Álagning tekjustofna og gjaldskrá ársins 2016.
Álagning fasteignaskatts, holræsagjalda, sorpeyðingar- og sorphreinsunargjalda árið 2016:
1. Fasteignaskattur af húsnæði verði eftirfarandi hlutfall af fasteignamati þeirra samkvæmt II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum, og reglugerð um fasteignaskatt nr. 1160/2005.
a). Íbúðir og íbúðarhús, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,35 %.
b). Allar aðrar fasteignir: 1,55 %.
2. Holræsagjald af fasteignamati húsa og lóða skv. reglugerð.
a) Íbúðir og íbúðahús, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,20%.
b) Allar aðrar fasteignir: 0,30%.
3. Bæjarráð samþykkir að lagt verði sorpeyðingargjald á hverja íbúð, kr. 34.867 og að a)sorphirðu- og tunnuleigugjald verði kr. 15.685 á hverja íbúð.
b) Sorpbrennslu- og sorpeyðingargjöld fyrirtækja samkvæmt samþykktri gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs sem tekur gildi þann 1. janúar 2015.
4. Gjalddagar fasteignagjalda skulu vera tíu þ.e. 15. feb., 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. sept., 15. okt., 15. nóv.
5. Dráttarvextir reiknast af gjaldföllnum fasteignagjöldum 30 dögum eftir gjalddaga.
6. Bæjarráð samþykkir að veittur verði 5% staðgreiðsluafsláttur af fasteignasköttum, holræsagjöldum skv. liðum 1 og 2 hér að ofan, séu þau að fullu greidd eigi síðar en 8. febrúar 2016.
7. Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld ellilífeyrisþega,og öryrkja skv. neðangreindum reglum:
Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum hjá Vestmannaeyjabæ.
1. gr.
Elli og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Vestmannaeyjum og eru þinglýstir eigendur viðkomandi húsnæðis er veittur afsláttur af fasteignaskatti, holræsagjöldum og sorpgjöldum samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Afslátturinn er tekjutengdur.
2. gr.
Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur:
a) Sem eru 67 ára á árinu eða eldri
b) Hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar álagningarárið.
c) Afslátturinn nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.
3. gr.
�?egar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- og eða örorkulífeyrisþegi.
Falli annar aðilinn, frá, þá á sá eftirlifandi rétt á því að njóta afsláttar hjóna, eða sambúðaraðila, út árið sem fráfallið átti sér stað á, óski hann þess.
4. gr.
Afsláttur er hlutfallslegur af heildartekjum þ.e. tekjum sem mynda álagningarstofn tekjuskatts-útsvars og fjármagnstekjuskatts, eins og þesssar tekjur voru á næsta ári á undan álagningarári. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks. Viðmiðunarfjárhæðirnar skulu framreiknaðar árlega með tilliti til breytinga á launavísitölu frá upphafi til loka þess tekjuárs sem miðaða er við hverju sinni.
5. gr.
Framkvæmd útreiknings afsláttar fer þannig fram að gögn eru sótt til RSK um það hverjir eigi rétt á afslætti og hverjar tekjur þeirra voru á næsta ári á undan álagningarárinu. �?egar nýtt skattframtal liggur fyrir á álagningarári er heimilt að endurreikna afslátt þeirra er þess óska og leiðrétta í samræmi við nýjar forsendur.
6. gr.
Tekjumörk eru sem hér segir:
1. Fyrir einstakling:
a. Brúttótekjur 2014 allt að 3.721 þús. kr. 100% niðurf.
b. Brúttótekjur 2014 allt að 4.404 þús. kr. 70% niðurf.
c. Brúttótekjur 2014 allt að 5.000 þús. kr. 30% niðurf.
2. Fyrir hjón, sem bæði eru ellilífeyrisþegar:
a. Brúttótekjur 2014 allt að 4.477 þús. kr. 100% niðurf.
b. Brúttótekjur 2014 allt að 5.410 þús. kr. 70% niðurf.
c. Brúttótekjur 2014 allt að 6.132 þús. kr. 30% niðurf.
Við mat á niðurfellingu fasteignaskatts af eigin íbúð 75% öryrkja, sem þeir búa í, skal hafa hliðsjón af fyrrgreindum reglum.
3. Sorphirðu-/sorpeyðingargjald, holræsagjald og lóðarleiga verði fellt niður eða lækkað í samræmi við ofangreindar reglur hvað varðar eigin íbúð ellilífeyrisþega og 75% öryrkja, sem þeir svo sannarlega búa í.

Nýjustu fréttir

Minning: Einar Birgir Sigurjónsson
Grátlegt tap ÍBV gegn KA í tvíframlengdum leik
Vinna allt að 100 tonn á dag
Foreldrar hvattir til að fylgjast með í fyrramálið
Útgerðar- og fjölskyldusaga Þóru og Óskars á Leó
ÍBV vann Val í æfingaleik
Þögn bæjarfulltrúa vekur spurningar
Herjólfur breytir áætlun á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.