Norska knattspyrnukonan Lisa-Marie Woods er gengin til liðs við úrvalsdeildarlið ÍBV og leikur með því á komandi keppnistímabili.
Woods er 31 árs, leikur sem miðjumaður og á að baki 23 landsleiki fyrir Noreg en þrettán þeirra lék hún árið 2010 þegar norska liðið bjó sig undir lokakeppni HM árið 2011. Hún missti hinsvegar af þeirri lokakeppni vegna meiðsla.
Woods hefur víða komið við en hún lék síðast með BIIK Kazygurt í Kasakstan og var í tvö ár hjá Adelaide United í Ástralíu. Hún hefur einnig spilað með liðum á borð við Turbine Potsdam í �?ýskalandi, FC Indiana og Boston Breakers í Bandaríkjunum, Fortuna Hjörring í Danmörku og Lilleström, Stabæk og Kolbotn í Noregi.
�?á er enski kantmaðurinn Rebekah Bass komin til ÍBV en hún kom til �?róttar um mitt síðasta sumar frá Sunderland. Hún er tvítug og gerði tvö af þeim sex mörkum sem �?róttur náði að skora í Pepsi-deildinni á síðasta ári.