Svekkjandi tap í spennandi leik
Stjarnan sigraði ÍBV með einu marki, 30-29, þegar liðin mættust í Olís deild kvenna í dag í Garðabæ. Leikurinn var jafn framan af en einnig mjög hraður og lítið um góðar varnir. Lið ÍBV seig smám saman fram úr Stjörnunni en mest náðu þær þriggja marka forskoti. ÍBV spilaði jafnan með auka mann í sókninni en tvisvar voru þær klaufar og misstu boltann þannig að Stjarnan skoraði í autt markið.
Á 21. mínútu var ÍBV með tveggja marka forskot, 10-12, Stjörnustelpur hrukku þá vel í gang og skoruðu sjö mörk gegn þrem frá ÍBV og náðu þar með forustunni 17-15 og þannig var staðan í hálfleik.
Stjarnan leiddi framan af seinni hálfleik en á 39. mínútu var staðan 21-19, þá kom góður kafli hjá ÍBV og skoruðu þær næstu fjögur mörk og breyttu stöðunni í 21-23. Stjarnan náði að jafna metin á 50. mínútu 26-26, við tóku spennandi lokamínútur. Hanna G. Stefánsdóttir skoraði sigurmark Stjörnunnar úr vítakasti þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. ÍBV fékk upplagt tækifæri til að tryggja sér annað stigið á lokamínútunni en Díana Dögg Magnúsdóttir skaut í slána úr vítakasti.
Mörk ÍBV skoruðu þær; Greta Kavaliuskaite 8, Ester �?skarsdóttir 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Drífa �?orvaldsdóttir 5, Telma Amado 4 og Guðbjörg Guðmannsdóttir 1.
Sara Dís Davíðsdóttir varði sjö skot í marki ÍBV og Erla Rós Sigmarsdóttir fjögur.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.