Stefnt er að því á næsta ári að skima fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi hjá fólki á aldrinum 60-69 ára. Í dag undirrituðu Kristján �?ór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og Kristján Oddsson, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands samkomulag um undirbúning þessa. Velferðarráðuneytið leggur 25 milljónir króna til verkefnisins og Krabbameinsfélagið 20 milljónir, en www.ruv.is greindi frá
Krabbamein í ristli og endaþarm er þriðja algengasta krabbameinið á heimsvísu og það krabbamein sem dregur næst flesta til dauða á Vesturlöndum. Í tæp tíu ár hefur verið rætt um formlega hópleit að ristilkrabbameini hér á landi. 2006 til 2010 greindust árlega að meðaltali 74 karlar og 60 konur með slík mein og var meðalaldur við greiningu 70 ár. Með hópleit er stefnt að því að finna einkennalausa einstaklinga sem hafa sjúkdóminn á frumstigi og finna heppilega meðferð.
Krabbameinsfélagið sér um undirbúning leitarinnar og í ár verða keypt greiningartæki og annar búnaður, forrita þarf gagnagrunna og uppfæra sjúkraskrárkerfi. Sunna Guðlaugsdóttir sérfræðingur í meltingarsjúkdómum skilaði í sumar greinargerð um skimunina þar sem lagt var til hvernig væri best að haga henni og fjallað um nauðsynlegan undirbúning.