Eyjamenn með afgerandi forystu eftir sigur á Selfyssingum í kvöld

Leikmenn ÍBV sýndu styrk sinn í uppgjöri toppliða 1. deildarinnar þegar þeir tóku á móti Selfyssingum á Hásteinsvellinum í kvöld. Eyjamenn unnu 3:0 og áttu í raun ekki í teljandi vandræðum með slaka Selfyssingar, sem oft hafa leikið betur. ÍBV er nú komið með afgerandi forystu á toppi deildarinnar, er nú með 30 stig í efsta sæti, Selfoss er í öðru sæti með 22 og Haukar, sem unnu Stjörnuna í kvöld, skutust upp í þriðja sætið með 21 stig. Nú er keppni í 1. deild hálfnuð og náði ÍBV í 30 stig af 33 mögulegum í fyrri ellefu umferðunum.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.