Áttundi þingmaður Suðurkjördæmis, stjórnarþingmaðurinn Róbert Marshall segir í Morgunblaðinu í dag skort á pólitískri forystu í því ástandi sem skapast hefur í Landeyjahöfn. Róbert segir að samgönguráðhera þurfi að stíga inn í þetta mál af myndugleika og taka utan um þessa atburðarás. „
Ef Siglingastofnun stendur sig ekki í því að hafa tiltækt dæluskip til þess að vinna á meðan hægt er að vinna í að halda höfninni opinni þá þarf samgönguráðherra að tryggja að það sé gert,“ segir Róbert í samtali við Morgunblaðið.