Sjúkratryggingar Íslands kanna hvort Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum hafi hugsanlega ekki farið eftir samningi um sjúkraflug þegar þyrla var send til Vestmannaeyja til að sækja fyrirbura. Lögfræðingur hjá sjúkratryggingum telur illa farið með fé skattborgara að greiða þrefalt meira fyrir þyrlu en hefðbundið sjúkraflug sé þess ekki þörf.