Eins og kunnugt var í gær þá urðu Eyjamenn Íslandsmeistarar í handbolta. Eftir 3. leikinn í einvíginu voru Eyjamenn 2-1 undir og með bakið upp að vegg og ekki höfðu margir trú á því að þeir myndu snúa einvíginu sér í vil.
En Grétar �?ór Eyþórsson vinstri hornamaður Eyjamanna hafði trú á þessu verkefni allan tíman og sendi á alla leikmenn og þjálfara liðsins þessi orð sem virðist heldur betur hafa kveikt í mannskapnum, þvílík orð!
Hér má sjá hvað hann sendi:
�??�?g heiti Grétar �?ór og er leikmaður nr 73 í ÍBV. �?g ber töluna 73 af tvennum ástæðum, annarsvegar Stefan Kretzchmar og hinsvegar heimaeyjargosið, því hefði þær náttúruhamfarir ekki átt sér stað væri ég ekki til.
Mamma fluttist til eyja til að hjálpa til við uppbygginguna hér í eyjum. Gosið var hræðileg upplifun fyrir eyjamenn og þegar gosinu lauk 3. júlí 1973 og án þess að vita hvað var mikið af ónýtum húsum og mikið af vikri út um allt þá veit ég að útlitið var svart. Auðvelt hefði verið að flytja bara til Rvk, Selfoss eða einhverja aðra bæi á fastalandinu. En fólkið gafst ekki upp, það mokaði og mokaði, eftir 10 daga mokandi eins og skepnur sást varla högg á vatni, gafst fólkið upp þá, nei það sá fyrir sér eyjuna fallega og hreina og það dró það áfram.
Að vinna Hauka tvisvar hljómar auðvelt við hliðina á þessum hetjum sem byggðu upp eyjuna okkar. Guðni Ingvarsson ætlar þú að stela nokkrum boltum fyrir okkur og missa ekki skytturnar breitt?? Agnar Smári Jónsson ætlar þú að stoppa Begga þegar hann ætlar breitt?? Grétar �?ór Eyþórsson ætlar þú að vinna eins og skepna þegar beggi er með boltann og stela nokkrum??? Magnús Stefánsson ætlar þú að skerma eins og heimaklettur??? Sindri Haraldssonætlar þú að vinna eins og villihundur og binda þessa vörn saman???Róbert Aron Hostert ætlar þú að vinna undir Sindra í blíðu og stríðu??? Kolbeinn og Henrik ætlið þið að taka alla bolta í nær??? Teddi ætlar þú að fiska ruðning þegar beggi kemur milli 1 og 2??? Andri Heimir Friðrikssonætlar þú að koma inn í hverja aðgerð af krafti og vinna leikinn fyrir okkur, þú ert okkar X factor ?? og allir sem eru þáttakendur í þessu liði, ef allir klára sitt verkefni varnalega og þéttum svo allir saman sem lið, þá á enginn möguleika í okkur. �?g vil fá geðveiki í þetta frá fyrstu mínútu, í hvert skipti sem við hlaupum til baka og snúum okkur við til að taka á móti Laukunum þá á okkur að hlakka til að vinna eins og skeppnur Saman og fyrir hvern annann. Mikið hlakkar mig til þriðjudagsins 13. maí�??
(tekið af fimmeinn.is)